Nýjar umbúðir- Akvósum

Nú er Akvósum frá okkur komið í nýjar og betri umbúðir! Akvósum var áður í 100 ml krukkum en núna er kremið komið í betri og notendavænni umbúðir, 100 ml túpur.Akvósum er feitt rakakrem án allra ilm- og litarefna og með lágmarks rotvörn. Kremið hentar vel á þurrkubletti, til að hreinsa burt augnfarða og sem alhliða rakakrem á líkama og í andlit. Kremið þykir mjög gott til að bera á börn.