Skilmálar og trúnaðarstefna

Pharmarctica á höfundarrétt að öllum þeim upplýsingum sem birtast á vef fyrirtækisins og leitast fyrirtækið við að hafa þær upplýsingar eins réttar og unnt er. Þeim sem heimsækja vefsvæðið er heimilt að sækja upplýsingar til einkanota en óheimilt er að nýta þær í viðskiptalegum tilgangi. Óheimilt er að endurbirta, dreifa eða breyta efni vefsins nema með skriflegu leyfi Pharmarctica. Pharmarctica getur ekki ábyrgst að allar upplýsingar sem birtar séu réttar og tekur ekki ábyrgð á skaða sem einhver telur sig hafa orðið fyrir vegna upplýsinga sem birst hafa á vef fyrirtækisins. 

Heimasíða Pharmarctica býður upp á tengimöguleika við önnur vefsvæði. Þær tengingar eru eingöngu til þæginda fyrir notendur heimasíðunnar. Pharmarctica ber enga ábyrgð á því sem birt er á þeim vefsvæðum sem síðan tengist við og tekur ekki ábyrgð á skaða sem einhver telur sig hafa orðið fyrir vegna efnis sem birtist á vefsvæðum annarra. 

Vöru- og þjónustumerki og vöruheiti fyrirtækisins eru varin að lögum og notkun þeirra í viðskiptalegum tilgangi er með öllu óheimil nema með skriflegu samþykki Pharmarctica.

Pharmarctica er ekki skylt að uppfæra það sem fram kemur á vefsvæði fyrirtækisins og kunna upplýsingar sem þar birtast að breytast án fyrirvara.

Lagalegar kröfur eða kærur sem rekja má til notkunar vefsvæðisins skulu byggðar á íslenskum lögum og reknar fyrir dómstólum á Norðurlandi eystra.