Jarðhnetuolía

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Jarðhnetuolía er hrein olía sem nota má á allan líkamann og í andlit. Olían er notuð á margvíslegan máta t.d.; sem nuddolía, til að bera á börn, til að setja útí baðvatn og  til að mýkja upp skán í hársverði.

Notkunarleiðbeiningar:

Til að mýkja upp skán í hársverði: berið olíuna í hársvörðinn og leyfið að bíða í a.m.k. 1 klst. Bestur árangur næst ef olían er borin í hársvörðinn að kvöldi til og leyft að virka yfir nótt. Daginn eftir er hársvörðurinn greiddur með mjúkum bursta eða greiðu þannig að skánin fari. Varast ber að greiða of fast til að særa ekki húðina. Til að viðhalda árangrinum getur þurft að bera olíuna í hársvörðinn reglulega.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.
Ofnæmisvaldar: Jarðhnetur og afurðir af þeirra.

Innihald (INCI): Arachis hypogaea oil
Innihald: Jarðhnetuolía

Umbúðastærð: 100 ml flaska með spraututappa
Vörunúmer (100 ml): 12000044

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.