Hydrofíl rakakrem

Án allra ilm- og litarefna!
Án parabena!

Hydrófíl rakakrem er alhliða rakakrem sem má nota á allan líkamann og í andlit. Orðið hydrófíl vísar í vatn, kremið inniheldur mikið magn af vatni og fituefni. Kremið er hannað með viðkvæma húð í huga, hentar öllum húðgerðum og öllum aldri. Hydrófíl rakakrem er sannkallað fjölskyldukrem þar sem líklegt er að allir í fjölskyldunni geti notað það með góðum árangri.

Geymsla: Geymist við stofuhita.

Innihald (INCI): Aqua, Petrolatum, Cetearyl alcohol, Paraffinum liquidum, Sodium cetearyl sulfate, Phenoxyethanol, Potassium sorbate, Disodium phosphate, Citric acid, Potassium phosphate.

Umbúðastærðir: 100 ml túpa, 200 ml túpa og 500 ml flaska með dælu.
Vörunúmer (100 ml): 12000005 
Vörunúmer (200 ml): 12000101
Vörunúmer (500 ml): 12000179


Öll okkar krem eru án parabena og litarefna, þau eru ekki prófuð á dýrum og framleidd í GMP vottuðu húsnæði.