Karbamíðkrem 10%

Án allra ilm- og litarefna!
Án parabena! 

Karbamíðkrem 10% er feitt rakabindandi krem sem hentar fyrir venjulega, þurra húð og mjög þurra húð. Kremið má nota í andlit og á hendur ef húðin er mjög þurr á þessum svæðum. Efnið karbamíð sem er í kreminu bindur raka í húðinni og fituefni gefa húðinni raka og mýkt. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn.

Fyrir minna þurra húð bendum við á Karbamíðkrem 5% 

Innihald (INCI): Aqua, Paraffinum liquidum, Urea, Petrolatum, Lanolin alcohol, Cetearyl alcohol, Phenoxyethanol, Potassium sorbate, Carbomer og Sodium hydroxide.
Innihald: Vatn, paraffínolía, karbamíð, vaselín, ullaralkóhól, bindiefni, rotvörn, rotvörn, carbomerum og natríum hydroxíð.

Umbúðastærðir: 200 ml túpa
Vörunúmer (200 ml): 12000029

Tengdar vörur: Karbamíðkrem 5%

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.