Augngel

Augngelið er rakagefandi gel með hyaluronic sýru, gúrku og þörungaextrakti. Gelið dregur úr þrota á augnsvæðinu og getur minnkað fínar línur. Virku innihaldsefnin í gelinu eru sodium hyaluronate sem er einn öflugasti rakagjafi fyrir húð sem þekktur er í dag. Við notum sérstaka gerð af þessu efni (SLMW) sem hefur virkari áhrif á húðina en venjuleg hyaluronic acid gerir. Koffín er talið draga úr þrota ásamt því að efnið er talið hafa jákvæð áhrif gegn baugamyndun á augnsvæðinu. Gúrkuextrakt hjálpar til við að draga úr þrota og gefur raka. Að lokum er það rúsínan í pylsuendanum en það er blanda af þörungarextröktum og glúkósamín HCl. Í prófunum (in vivo) er þetta virka efni búið að sýna að með daglegri notkun í 4 vikur grynnkuðu línur á augnsvæði þátttakenda um 33% sem gaf þátttakendum unglegra útlit sem samsvaraði allt að 7 og hálfu ári. Efnablandan hefur því sýnt í 4 vikna in vivo prófun að hún dregur úr hrukkum, pokamyndun og viðkvæmni í húð. Eykur þéttni í húð, raka og ljóma. Örvar húðendurnýjun. 

Bera skal augngelið á í þunnu lagi á augnsvæðið, varast skal að fá vöruna í augun. Sumir finna fyrir tingling effect (kitltilfinningu) þegar gelið er borið á sem er eðlilegt þar sem varan inniheldur koffín. 

Öll okkar krem eru án parabena og litarefna, þau eru ekki prófuð á dýrum og framleidd í GMP vottuðu húsnæði. 

Geymsla: Geymist við stofuhita.


Yfir 90% af innihaldi vörunnar er af náttúrulegum uppruna.

 

Innihald (INCI): Aqua (icelandic springwater), Propanediol, Glyceryl stearate citrate, Glycerin (vegetable), Hydroxyethylcellulose, Caffeine, Sorbitan oleate, Sodium hyaluronate, Urea, Glucosamine HCl, Laminaria digitata extract, Saccharomyces cerevisiae extract, Cucumis sativus (cucumber) fruit extract, Xylityl sesquicaprylate, Caprylyl glycol, Potassium sorbate, Sodium benzoate, Phenoxyethanol.

Umbúðastærðir: 15 ml airless pumpa
Vörunúmer: 12000013