Norskir brjóstdropar

Með lakkrísbragði!
Án litarefna!

Norskir brjóstdropar eru gríðarlega kröftugir brjóstdropar sem mýkja hálsinn, stilla þráláta ertingu í hálsi og minnka slímmyndun. Brjóstdroparnir þykja einnig virka vel upp í ennis- og kinnholur.
Mixtúran er eingöngu ætluð fullorðnum, fyrir börnin bjóðum við uppá Lakkrísdropa
Norskir brjóstdropar duga við fleiru en ertingu í hálsi því að í sauðburði nota margir bændur þessa mixtúru með góðum árangri á líflítil lömb.

Notkunarleiðbeiningar:
Til inntöku: Hristist vel fyrir notkun. Skammtastærðir fyrir fullorðna eru 5 ml (1 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag. ATH alls ekki er ætlast til að fólk taki "gúlsopa" af mixtúrunni en slíkt getur valdið óþægindum í maga, jafnvel uppköstum þar sem mixtúran er mjög sterk!!!

Varúð!
Mixtúran er ekki ætluð börnum.
Mixtúruna skal ekki taka inn á meðgöngu.
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Neysla vörunnar og akstur fara ekki saman.
Ekki skal neyta meira daglega af vörunni en inntökuleiðbeiningar gefa upp.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.

Innihald (INCI): Syrupus sacchari, alcohol (202 mg/ml (24%)), aqua, diluendum glycyrrhiaze,ammonium hydroxide 25% (28,47 mg/ml), diethyl ether (19,01 mg/ml) illicium verum oil, champhor, benzoic acid (0,71 mg/ml og foeniculum vulgare oil
Innihald: Sykursýróp (vatn, sykur og rotvörn), spíri, vatn, lakkrís (vatn, ammoníak, glýserín, spíri og lakkrísduft), ammoníum hydroxíð, eter, anísolía, kamfóra, bensóik sýra og fenníka.

Umbúðastærðir: 100 ml flaska
Vörunúmer (100 ml): 12000194