Klórhexidínspritt litað

Án allra ilm-, og rotvarnarefna!

Klórhexidínspritt litað er sótthreinsandi lausn sem er notuð til sótthreinsunar á húð þar sem þörf er að sjá hvaða svæði hefur verið sótthreinsað. Í lausninni er indikatorinn phenol red sem veldur því að lausnin litar húð gulbrúna og einnig verður lausnin bleik á lit ef hún kemst í tæri við vatn. Lausnin inniheldur virka efnið klórhexidín.
 
Varúð!
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Eldfimt.
Umbúðir skulu vera vel luktar.
Haldið frá hita- og neistagjöfum.
Reykingar bannaðar.

Geymsla: Geymist á vel loftræstum stað, fjarri hita- og neistagjöfum.
Ofnæmisvaldar: Klórhexidín og phenol red.

Innihald (INCI): Alcohol (608 mg/ml (70%)), aqua, chlorhexidine digluconate (5 mg/ml) og phenol red (0,28 mg/ml).
Innihald: Spíri, vatn, klórhexidín og phenol red.

Umbúðastæðir: 500 ml flaska með fliptop spraututappa
Vörunúmer (500 ml): 12000180

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.