Um vörurnar

APÓTEK  vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu Pharmarctica á Grenivík.

APÓTEK vörurnar eru hágæða vörur, framleiddar eftir traustum forskriftum sem notaðar hafa verið áratugum saman. Þessar vörur hafa fyrir löngu sannað gildi sitt, eru á viðráðanlegu verði og henta allri fjölskyldunni - enda er kjörorð okkar:

APÓTEK - fyrir alla!

APÓTEK lyfjalínan samanstendur af mixtúrum, lausnum og kremum sem framleidd eru eftir forskriftum lækna. Mikið af þessum lyfjum hafa verið þekkt á íslenska markaðnum í mörg ár.

APÓTEK snyrtivörulínan inniheldur allar þær vörur sem þú þarft til að viðhalda mýkt, raka og teygjanleika í húðinni þinni. Snyrtivörurnar eru hannaðar með viðkvæma húð í huga og því eru engin ilm- eða litarefni í þeim. Einnig er allri rotvörn haldið í lágmarki og er mikið af vörunum alveg án rotvarnar. Snyrtivörurnar eru því kærkomnar fyrir þá sem þola illa aukaefni.

Vörurnar eru unnar úr hágæða hráefnum sem eru vottuð og yfirfarin samkvæmt lyfja- og snyrtivörustöðlum.  

APÓTEK vörurnar eru fáanlegar í helstu lyfjaverslunum landsins.