Lífræn kókosolía

Lífræna kókosolían frá okkur er nú fáanleg aftur eftir smá hlé. Þessi hágæða lífræna kókosolía hentar gríðarlega vel í baðvatnið og til að bera á sig eftir þvott. Einnig nýtur olían mikilla vinsælda hjá óléttum konum til að mýkja upp húðsvæðið á maga, baki og mjöðmum. Kókosolían er afar hentug til að bera á ungabörn og börn eftir bað- og sundferðir. Bjóðum barninu okkar aðeins upp á það besta og veljum lífræna kókosolíu!