Ný vara frá AK Pure Skin Iceland

Þann 4 mars kom ný vara frá AK Pure Skin á markað, OLÍU SERUM veitir húðinni mikinn raka, nærir og bætir áferð húðarinnar. Inniheldur virk andoxunarefni sem vernda húðina ásamt öflugum náttúrulegum olíum sem mýkja og binda raka. Komið í sölu á www.akpureskin.is og á helstu sölustaði*.
Nokkrir punktar:
- Olíu serum má nota kvölds og/eða morgna og er mismunandi ávinningur af virkninni. Einn helsti eiginleiki er að það læsir rakann inn í húðinni.
- Ávinningur ef notað er á daginn. Andoxunarefnin vernda húðina gegn sindurefnum úr umhverfinu sem búa til öldrunareinkenni á húðinni.
- Ávinningur ef notað er að kvöldi (fyrir svefn). Olían liggur lengur á húðinni án áreitis og virknin er alla nóttina.
 
Við hjá Pharmarctica óskum samstarfsaðilum okkar hjá AK Pure Skin innilega til hamingju með nýju vöruna þeirra.