Ný heimasíða

Nýja heimasíðan okkar er nú loksins komin í loftið. Hérna á síðunni undir hlekknum vörulisti er hægt að nálgast nýja vörulistann okkar. Miklar breytingar... hafa verið í gangi síðustu mánuði. Höfum við nú náð því takmarki að skipta út öllum eldri umbúðum. Samfara því var ákveðið að flokka vörurnar í fimm vöruflokka sem eru aðgreindir með mismunandi litum. Hægt er að skoða hvern vöruflokk fyrir sig eftir því hvað fólk er að leita að.
Við vonum að með þessu fyrirkomulagi verði auðveldara fyrir fólk að nálgast upplýsingar um þær vörur sem það hefur áhuga fyrir. Það er von okkar að viðskiptavinir okkar verði ánægðir með þessar breytingar sem við erum afar stolt af.