Spurt, svarað og sagt frá

Við höfum nú bætt hér inn undirsíðum sem bera heitið Spurt og svarað og Sagt frá. Þar inn verða settar spurningar  sem okkur hafa borist í gegnum fyrirspurnir.....

og einnig verða settar inn skemmtilegar reynslusögur sem viðskiptavinir hafa deilt með okkur. Við viljum eindregið hvetja fólk til að nýta sér fyrirspurnirnar til að afla sér upplýsinga um vörurnar eða fyrirtækið okkar. Allar ábendingar um hvernig vörurnar eru að reynast og hvort eitthvað mætti betur fara eru vel þegnar enda eru það slíkar ábendingar sem meðal annars segja okkur hvort við séum á réttri leið.

Að lokum viljum við enn og aftur þakka góðar viðtökur á gömlu góðu vörunum okkar í glænýju útliti. Veljum íslenskt og styrkjum íslenska framleiðslu.