Bossakrem

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Bossakrem er 18% sinkkrem til varnar bruna á bleyjusvæðinu. Kremið er millistíft en linast upp við hita og því er mjög auðvelt að bera kremið á. Gott er að nota kremið samhliða Barnapúðri, sérstaklega í erfiðum tilfellum þegar húðin er mjög rök. Bossakrem má nota á önnur húðsvæði heldur en á bleyjusvæðið t.d. í húðfellingar og undir brjóst.

Notkunarleiðbeiningar:
Berið kremið á hreina og þurra húð í þunnu lagi eftir hver bleyjuskipti eða þangað til húðin er orðin heil. Kremið má nota eins oft og þörf þykir, einnig sem forvörn gegn þvagbruna.

Geymsla: Geymist við stofuhita. Mikill kuldi gerir kremið mjög stíft þá er gott að velgja túpuna á milli handanna áður en kremið er kreist úr.
Ofnæmisvaldar: Lanolin.

Innihald (INCI): Petrolatum, paraffinum liquidum, zinc oxide, lanolin og talc
Innihald: Vaselín, paraffínolía, sink oxíð, ullarfeiti og talkúm. 

Umbúðastærð: 50 ml túpa
Vörunúmer (50 ml): 12000119


APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.